Skárra að vera púkó

Jæja, nú hefur gengi íslensku krónunnar sunkað niður síðustu mánuði og náð sögulegri lægð.  Fréttatímarnir hafa því verið uppfullir af barlómi og hræðilegum fréttum af hækkandi lánum og hækkandi eldsneytisverði.  Samkvæmt sumum ku besta lausnin á vandamálinu sú að ríkið hlaupi undir bagga með almenningi og bjargi honum sem snöggvast frá hyldýpi skuldanna.  Þetta er nú meiri vitleysan.  Fólk verður bara að taka afleiðingum gjörða sinna í þessum málum sem öðrum.

Auðvitað er leiðinlegt að fólk fari á hausinn og ég óska engum þess en hinsvegar mátti alveg sjá í hvað stefndi og það er kominn tími til að Íslendingar láti sér að kenningu verða þegar kemur að botnlausri neyslu.  Þarf fólk virkilega að kaupa nýjan bíl á þriggja mánaða fresti, vélsleða, mótorhjól, 50" flatskjá, nýja eldhúsinnréttingu á hverju ári og tvær utanlandsferðir á ári??  Ég er viss um að þeir eru fáir í fjárhagslegum vandræðum nú sem sniðu sér stakk eftir vexti í peningamálum sínum en fylgdust með öðrum eyða um efni fram.

Hvað hátt eldsneytisverð varðar er til einföld lausn fyrir þá sem ekki eiga fyrir bensíndropanum:  Að keyra minna! 

Ég minnist þess nú þegar ég ræddi erlendu lánin við mann einn mér nákominn í október sl.  Honum fannst það sjálfsagt mál að taka lán í erlendri mynt þó svo að hann hefði laun í íslenskum krónum.  Félagi hans hafði nefnilega reiknað út að gengi krónunnar þyrfti að lækka um 20% til að það væri hagkvæmara að taka lán í íslenskum krónum með íslenskum vöxtum.  Síðan þá hefur krónan lækkað um 30% miðað við evru.

Ja, mikið óskaplega er ég feginn að ég sleppti því að kaupa nýjan bíl, vélsleða, mótorhjól, eldhúsinnréttingu og utanlandsferð, allt á lánum, eins og allir hinir gerðu.  Það er jú skárra að vera púkó en á hausnum!


mbl.is Gríðarlegt flökt á krónunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr liður: 80's lag vikunnar

Áður en þetta blogg mitt deyr endanlega drottni sínum hef ég ákveðið að gera tilraun til að blása í það lífi, smella á það kossi lífsins.  Ég hef hugsað mér að kynna eina gamla og góða 80's hljómsveit í hverri viku með því að setja inn tónlistarmyndband af YouTube og stuttan fróðleikstexta um sveitina.

Þótt flestar góðar 80's hljómsveitir hafi komið frá Bretlandi er það amerísk hljómsveit sem ríður á vaðið.

Cock Robin var stofnuð árið 1984 af Peter Kingsbery (söngur, bassi, hljómborð, píanó), Önnu Lacazio (söngur), Clive Wright (gítar) og Louis Molino III (trommur).  Peter Kingsbery var driffjöður sveitarinnar og samdi langflest laga hennar.  Á sjö ára ævi sinni gaf sveitin út þrjár hljóðversplötur; Cock Robin (1985), After Here Through Midland (1987) og First Love: Last Rites (1990).  Hljómsveitin var hvað þekktust fyrir framúrskarandi lagasmíðar Kingsbery og frábæran söng þeirra Kingsbery og Lacazio.  Má því segja að þau tvö hafi verið kjarni hljómsveitarinnar og voru þau einu meðlimir hennar sem komu að gerð allra hljómplatna sveitarinnar.  Cock Robin kom aftur saman árið 2006 og sendi frá sér plötuna I Don't Want to Save the World.

Meðal þekktustu laga Cock Robin eru The Promise You Made, When Your Heart Is Weak, Just Around The Corner, Worlds Apart og Thought You Were on My Side.  Það er einmitt myndbandið við síðasttalda lagið sem má finna hér að neðan.

Heimild: www.allmusic.com

 

Cock Robin - Thought You Were on My Side (1985) 


Þotuhreyflar ganga ekki fyrir bensíni

Boeing 747 er knúin áfram af fjórum þotuhreyflum (e. jet engines).  Þotuhreyflar ganga ekki fyrir bensíni eins og sagt er í fréttinni, heldur þotueldsneyti (e. jet fuel).
mbl.is Flýgur á lífrænu eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel við hæfi

Michael Jeffrey Jordan fæddist í Brooklyn, New York, þann 17. febrúar 1963.  Það er því vel við hæfi að stjörnuleikur NBA þetta árið verði spilaður þann 17. febrúar nk., á 45 ára afmælisdegi þessa mikla kappa.
mbl.is Shaq verður ekki með í stjörnuleiknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú ætla ég að bregða út af vananum...

...og í stað þess að tuða í hljóði yfir lélegu málfari á mbl.is, sem gerist æði oft, þá ætla ég að tuða hér.

Maður segir að það megi lítið út af BERA en ekki bregða.

Sá ágæti vefur, mbl.is, sem ég skoða oft og títt verður nú að athuga sinn gang.  Það fer að heyra til undantekninga ef það eru ekki málfarsvillur í fréttum hans.  Nú skora ég á umsjónarmenn vefjarins og blaðamenn hans að taka sig taki.


mbl.is Sekt fyrir hélaðar rúður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumar auglýsingar

Síðan Evrópumótið í handbolta hófst í síðustu viku hafa handboltaunnendur sem nýta sér EM-vef Vísis.is þurft að horfa upp á einhverjar þær aumustu auglýsingar sem nokkurn tímann hafa sést, og hafa þær þó margar verið lélegar í gegnum tíðina.  Þessar fáránlegu auglýsingar eru frá ónefndu bílaumboði á Íslandi og sýna hvar bifreið er bakkað yfir hina ýmsu hluti sem tengdir eru þeim þjóðum er íslenska handboltalandsliðið spilar við þann daginn á EM.  Til að mynda var bílnum bakkað yfir sænskar kjötbollur fyrir Svíaleikinn, baguette-langloku fyrir Frakkaleikinn og nú fyrir Þjóðverjaleikinn er bílnum bakkað yfir Derrick heitinn á DVD.  Þessar auglýsingar eru til vansa fyrir viðkomandi bílaumboð og ekki til fyrirmyndar.  Í fyrsta lagi er ekkert íslenskt við þessa bíltegund, frekar en aðrar bíltegundir, og í öðru lagi er ódrengilegt að gera lítið úr öðrum með það að markmiði að sýnast stærri sjálfur.  Það á sérstaklega við þegar kemur að íþróttum og íþróttamannslegri framkomu.  Í því sambandi skal sérstaklega hafa í huga að íþróttamenn framtíðarinnar eru sennilega duglegir við að skoða þennan EM-vef Vísis.is.

Framkvæmdastjórinn sem fór upp á hól en kom niður þúfu

Ekki veit ég hvað álit Kristjáns Kristjánssonar, framkvæmdastjóra, á stærð Stórahóls kemur fannfergi á Suðurlandi við.  Ekki þekki ég þennan Kristján neitt og hef því ekki hugmynd um hvort hann er til þess bær að gefa sérfræðiálit á stærð fjalla, hóla og þúfna.  En ég er auðvitað bara uppalinn á flatlendinu á Selfossi og hef því aldrei búið í nágrenni alvöru fjalla

Ég geri mér auðvitað grein fyrir því að það er flest stærst og best fyrir austan og því sennilega hvergi á byggðu bóli hægt að finna jafnstórar þúfur og þar.  En að líkja Stórahól við þúfu bendir nú til að hann Kristján, framkvæmdastjóri, hafi aldrei séð Stórahól, eða upp á hann komið.  Stórihóll er alveg ágætlega stór hóll þar sem hægt er að skemmta sér konunglega á snjóþotu, sleða eða vörubílaslöngu.  Ég sé því enga ástæðu til að nota frétt um fannfergi á Suðurlandi til að gera lítið úr þessum gleðigjafa.

Nú ef brottflutta Austfirðinga langar svona mikið til að renna sér á snjóþotum niður alvöru fjöll, eins og þeir kalla þau, þá verða þeir bara að flytja aftur austur. 


mbl.is Fannfergi á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðili... aðili... aðili...

Mig langar að byrja þessa færslu á að óska Rúnari Kristinssyni til hamingju með landsleikina alla og árangurinn.  En snúum okkur þá að efni færslunnar; endalaus notkun hins mjög svo ljóta orðs „aðili“.  Þetta orð er einn ljótasti og mest óþolandi fylgifiskur stofnanamálsins sem nú tröllríður íslenskunni.  Þessi aðilinn og hinn eru aðilar að hinu og þessu með öllum hinum aðilunum.  Í flestum tilvikum er hægt að nota önnur og betri orð í stað þessa ljóta orðs.  Hversu oft hefur maður ekki heyrt eftir fjörugan fótboltaleik: „Liverpool var betri aðilinn í fyrri hálfleiknum.“  Í þessu tilviki væri einfaldara og miklu fallegra að segja: „Liverpool var betra liðið í fyrri hálfleiknum.“  Ennfremur má oft einfaldlega fella hið ljóta orð út úr setningu án þess að setja nokkuð í staðinn.  Það á til dæmis við um neðstu málsgreinina í fréttinni sem þessi færsla er tengd.  Miklu nær væri að skrifa: „Í kvöld voru einnig fjölmargir sæmdir heiðursmerki KSÍ ...“ og „Alls fengu 74 heiðursmerki, 53 voru sæmdir   ...“.  Öllum skilst að hér er átt við fólk sem starfað hefur í þágu fótboltans og lesendum er forðað frá hinu alræmda aðilafeni.


mbl.is Rúnar heiðraður fyrir 100 landsleiki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki jafn hrein og vonast var til...

Í gær fengum við afhenta lyklana að íbúðinni sem verður heimili okkar í vetur.  Úff, ég held svei mér þá að Frakkar hafi ekki hugmynd um hvernig hrein íbúð lítur út.  Okkur var lofað að hún yrði þrifin vel og vandlega en ekki staðið við það.  Við Therese vorum í allt gærkvöld að þrífa og ekki búin enn.  Við þrifum klósettið, baðherbergið og eldhúsið/stofuna.  Við eigum eftir að þrífa svefnherbergin og gólfið sem er býsna drullugt.  Það er þó flísalagt svo að það ætti að vera frekar auðvelt að þvo það.  Yfirleitt er þessi íbúð leigð út í skamman tíma í einu og ber hún þess nokkur merki.  Ég mun setja inn nokkrar myndir af íbúðinni þegar við verðum búin að þrífa.

Í dag ætlum við að taka strætó yfir í eitthvert magasín þar sem kunnugir segja að við getum fengið keypt sturtuhengi og aðra nauðsynjavöru.  Við neyddumst nefnilega til þess að henda sturtuhenginu sem fyrir var því það var að nokkru leyti þakið svartri myglu.  En það er líka eins gott fyrir okkur að ná strætó í dag því að á morgun mun hann ekki ganga vegna verkfalls.  Á morgun hefur nefnilega verið boðað verkfall hjá starfsmönnum strætó-, rútu-, lesta- og metrófyrirtækjanna.  Þeir eru nú verkfallssjúkir þessir Frakkar!!  Frá því á mánudaginn hafa háskólastúdentar verið í verkfalli og hafa þeir meinað fólki inngöngu í skólabyggingarnar.  Eins og einhverjum sé ekki sama þótt stúdentar fari í verkfall??  Það bitnar einungis á þeim sjálfum og engum öðrum, skrýtið lið... Grin

Í nýju íbúðinni höfum við ekki nettengingu og höfðum við því hugsað okkur að kaupa slíka þjónustu.   Í gær var okkur hinsvegar sagt að þráðlaust net verði sett upp í húsinu í desember eða janúar.  Það tekur því ekki fyrir okkur að setja upp tengingu fyrir nokkrar vikur og því höfum við ákveðið að bíða bara róleg eftir hinni tengingunni.  Sú tenging verður innifalin í leigunni, rétt eins og gervihnattasjónvarp sem þegar er virkt.


Gummi og Therese í Frans.

Nú höfum við Therese dvalið hér í Toulouse í næstum þrjár vikur.  Það fer nú ágætlega um okkur þrátt fyrir að við höfum ekki ennþá fengið eigin íbúð.  Það stendur þó til bóta því á mánudaginn kemur eigum við að fá íbúð við rue Saint Aubin, númer 10.  Á myndinni hér fyrir neðan má sjá mynd af Toulouse sem tekin var af Google Earth.

Toulouse

 

Hér er mynd sem sýnir betur 10 rue Saint Aubin...

  10 rue Saint Aubin

 

 ...og hér er mynd sem sýnir labið (LMTG) þar sem ég mun vinna doktorsverkefnið mitt.

  LMTG


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband